Harriet Tubman fæddist árið 1822. Foreldrar hennar voru þrælar og þess vegna var hún líka þræll. Hún strauk norður þangað sem ekki var þrælahald og fór svo margar ferðir suður til að leiða strokuþræla norður. Hún var njósnari og leiðsögumaður í her Norðanmanna í Borgarastríðinu á svæðum sem hún gjörþekkti.
Fólk hennar, svartir þrælar í Suðurríkjunum kölluðu hana MOSES og treystu leiðsögn hennar.
Margir söngvar sem nú eru þekktir sem negrasálmar urðu til úti á ökrunum við vinnu þrælanna. Drengjakór Reykjavíkur syngur tvo þessara söngva. Þetta voru söngvar Harriet Tubman og hún söng þá oft.
Bryndís Víglundsdóttir tók saman efni þessarar hljóðbókar og studdist einkum við þrjár bækur um Harriet, eina sem Ann Petry skrifaði og tvær sem Sarah Bradford, kennari og vinur Harriet skrifaði í samvinnu við hana.
|