Jólabaðið - hljóðbók

Það er mikið um að vera hjá Grýlu. Hún þarf að setja alla strákana sína í bað og þeir hafa ekki farið í bað síðan fyrir síðustu jól. Enda varð vatnið brúnt eins og kakó. Viljið þið ekki bara hlusta á söguna af jólabaði jólasveinanna?

Jólasveinarnir í Hamrahlíð
Elín heitir lítil stelpa í Hlíðunum í Reykjavík. Hún hittir jólasveinana fyrir utan Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem þeir eru að hjálpa henni Elínu álfastelpu að komast aftur heim til sín. Jólasveinarnir eru mjög ráðagóðir.

Hvað haldið þið að þeir hafi gert?

Grýla á fæðingardeildinni
Grýlu er sárillt í maganum og hann er orðinn ógnarstór. Strákarnir hennar, jólasveinarnir ákveða að fara með hana til borgarinnar á spítala.
Getur verið að 14. jólasveinninn sé á leiðinni? Nú skulið þið heyra!
Ég vona að þið hafið gaman af að hlusta á þessar sögur af Grýlu, Leppalúða og jólasveinunum.

Bryndís Víglundsdóttir skráði og les

 

Jólabaðið
1.200 ISK
Stykki
 

 


Gaman að lifa sf Brekkugerði 32 108 Reykjavík