Sögur af Munda - hljóðbók

Mundi átti heima fyrir vestan þegar hann var lítill strákur. Ýmislegt dreif á daga hans þegar hann var að alast upp sem er áreiðanlega frábrugðið daglegu lífi nútímabarna. Þið hafið t.d. líklega ekki siglt á ísjaka eða mætt mannýgu nauti eins og Mundi gerði. En alltaf var nóg við að vera, bæði í leik og starfi. Mundi sagði mér þessar sögur og nú segi ég ykkur þær. Ég vona að þig hafið gaman af að hlusta á sögurnar af Munda og samskiptum hans við dýrin.
Bryndís

Sögur fyrir þig, pabba og mömmu, afa og ömmu og aðra vini þína líka!

Bryndís Víglundsdóttir skráði og les.

Sögur af Munda
2.000 ISK
Stykki
 

 


Gaman að lifa sf Brekkugerði 32 108 Reykjavík