Hljóðbækur
Gaman að lifa hefur gefið út 12 hljóðbækur.
Á næstunni verður gefið út framhald af sögum Herriots, Blessuð skepnan.
Sagan Í Heiðmörk eftir Robert Lawson er fyrir börn á öllum aldri en einkum hugsuð fyrir börn á aldrinum 6-10 ára. Hún fjallar um daglegt líf smádýranna í Heiðmörk. Fremstur í flokki er hérastrákurinn Groggur sem stingur hundana léttilega af enda stekkur hann hærra og lengra en allir aðrir. Við kynnumst líka pabba hans og mömmu, Arnaldi frænda, Brodda gamla, Möllu moldvörpu, músastráknum Villa og fjölda annarra íbúa Heiðmerkur.
Nornin við Svörtutjörn er verðlaunabók fyrir unglinga eftir Elizabeth Speare, bók frá Bandarríkjunum um atburði sem gerðust um 1700 og er Kata ung stúlka frá Barbados, miðdepill atburðanna.
Þeir tóku allt, meira að segja nafnið mitt er mögnuð ævisaga Sano Halo grísku stúlkunnar frá Svartahafinu. Heima hét stúlkan Themia en var rænd öllu, meira að segja nafninu sínu og kölluð Sano. Hún var seld armenskum manni og flutti með honum til New York þar sem hún býr enn í hárri elli. Bókin hefur hlotið fjöldamargar viðurkenningar.
Smelltu á bækurnar til að lesa meira og kaupa eintak. |